Nafn fyrirtækisins: Prentvörur ehf., kt. 560805-0390 rekur vefinn Prentvörur.is hér eftir nefnt Prentvörur í skilmálum þessum.
Innsláttarvillur: Starfsmenn Prentvara reyna eftir fremsta megni að tryggja að réttar upplýsingar séu á vefsíðu og vefverslun Prentvara. Engin ábyrgð er tekin á innsláttarvillum, myndbrengli eða röngum og úreltum upplýsingum. Reynist pöntuð vara vera ófáanleg áskilja Prentvörur sér rétt til að hætta við pöntunina.
Verð: Verð á vörum á vefsíðu Prentvara er staðgreiðsluverð með 25.5 % virðisaukaskatti nema annað sé tekið fram. Verð geta breyst án fyrirvara
Afgreiðslufrestur: Í flestum tilfellum er afgreiðslutími pantana fimm til átta sólarhringar en getur í sumum tilfellum tekið fleiri daga.
Afhending vöru: Afhending vöru fer fram með Íslandspósti og greiðir seljandi lágmarksflutningskostnað.
Ábyrgð: Ábyrgð nær til framleiðslugalla og efnisgalla á vörum sem seldar eru hjá Prentvörum. Ábyrgðartími er í tvö ár frá útgáfudegi reiknings sem jafnframt gildir sem ábyrgðaskírteini. Prentvörur ber á engan hátt ábyrgð á slæmri eða rangri meðhöndlun vörunnar eða skemdum í flutningi. Prentvörur er ekki ábyrgt fyrir afleiddum skaða sem rekja má til gallaðra vöru. Viðgerðir vegna ábyrgða skulu fara fram á verkstæði Prentvara.is eða öðru verkstæði sem Prentvörur samþykkir. Flutningskostnaður til og frá verkstæði fellur ekki undir ábyrgð. Vara fellur úr ábyrgð ef annar en Prentvörur gerir við vöru eða gerir tilraun til viðgerðar.
Skilaréttur: Skilaréttur er í 14 daga frá útgáfudegi reiknings á vörum sem eru pantaðar í gegnum vefverslun Prentvara. Vöru sem er skilað skal vera í upprunalegri pakningu og ástandi, órofið innsigli og allir fylgihlutir með. Prentvörur.is áskilur sér rétt til að yfirfara vöru áður en hún er tekin til baka. Ef verðbreytingar verða á vöru á þessum 14 dögum er hún tekin til baka á gildandi söluverði þann dag, þó ekki á hærra verði en upprunalegu verði vörunnar.
Prentvorur er ekki heildsala og áskilur sér rétt til að hafna magnpöntunum.
Eignaréttarfyrirvari: Hið selda er eign Prentvara þar til verð er að fullu greitt. Samþykktir víxlar, skuldabréf eða greiðsla með ávísunum afnema ekki eignaréttinn fyrr en full greiðsla hefur borist.