Íslenska English
Skútuvogi 1, 104 Reykjavík - opið 9-18 virka daga
Vörukarfa: Það eru 0 vörur í körfunni, samtals verð er 0 ISK | Skoða körfu | Klára innkaup

Stíflaður prenthaus - ástæður og viðgerðarkostnaður

Stíflaður prenthaus - ástæður og viðgerðarkostnaður


Framleiddar eru tvær gerðir af bleksprautuprenturum: þar sem prenthausinn er áfastur prenthylkinu og þar sem prenthausinn er “fastur” í prentaranum.

Þegar prenthausinn er áfastur prenthylkinu skiptir þú um hann í hvert skipti sem þú kaupir prenthylki, þessi hylki eru oftar en ekki mun dýrari en hylkin í þá prentara sem eru með prenthausinn “fastan”.

Við fáum svo til eingöngu til okkar í viðgerð, prentara með áföstum prenthaus. Iðulega eru þessir prentarar 3-7 ára og jafnvel eldri og hafa ekki verið í mikilli notkun.

Samhæfð blekhylki eru ekki ástæða þess að prenthausar stíflist, aðalástæðurnar eru þessar:

  • Prentarinn er kominn til ára sinna
  • Prentarinn hefur verið lítið notaður
  • Ryk hefur komist í prenthausinn
  • Prentarinn er geymdur á heitum og þurrum stað




Við hjá Prentvörum höfum miklar og góða reynslu í að þrífa prenthausa. Í langflestum tilfellum tekst okkur að losa stíflurnar og koma prentaranum í upprunanlegt ástand. Til þess að losa stífluna þarf blek að flæða um prenthausinn, oftar en ekki þurfum við að skipta út tómum blekhylkjum og setja ný í staðinn.

Þar sem við getum ekki tryggt árangurinn og við verðum eflaust að bæta hylkjum í prentarann þá greiða viðskiptavinir sem koma með prentara í viðgerð skoðunargjald kr. 3.000 og eitt stk. af hverjum lit sem fer í prentarann áður en viðgerð getur hafist.