Íslenska English
Skútuvogi 1, 104 Reykjavík - opið 9-18 virka daga
Vörukarfa: Það eru 0 vörur í körfunni, samtals verð er 0 ISK | Skoða körfu | Klára innkaup

Einn ánægður með þjónustuna

Við fengum tölvupóst frá einum ánægðum viðskiptavini. Okkur þykir vænt um að sjá að fólk er þakklátt fyrir þjónustu sem okkur þykir sjálfsögð.
,,Ég keypti mér blekhylki í Epson prentara hjá Prentvörum vegna þess að þar fékk ég þau ódýrust og fékk þau send heim án sendingarkostnaðar(ég bý úti á landi).
Setti ég hylkin í prentarann allt eftir kúnstarinnar reglum og allt gekk prýðilega í ca. mánuð en þá var eins og blekið væri búið (ég nota prentarann ekki mikið).
Hringdi ég þá í Prentvörur og var bent á að það gæti hafa þornað í prentaranum og starfsmaðurinn  kenndi mér ráð til þess að skola út úr honum og bað mig að hafa samband við sig daginn eftir.
Ekki dugði þetta ráð en það var ekkert verið að flækja málin heldur bauðst starfsmaðurinn til þess að senda mér ný blekhylki mér aljörlega að kostnaðarlausu og prentarinn virkaði fínt þegar ég hafði sett nýju hylkin í.
Þetta finnst mér algjörlega frábær þjónusta og það viðmót sem ég fékk hjá fyrirtækinu til fyrirmyndar og fyrir það er ég þakklátur
 
Kveðja
Tómas"