Íslenska English
Skútuvogi 1, 104 Reykjavík - opið 9-18 virka daga
Vörukarfa: Það eru 0 vörur í körfunni, samtals verð er 0 ISK | Skoða körfu | Klára innkaup

Frábær gæði í blekhylkjum frá okkur

Páll Kjartansson ljósmyndari hefur verið að eigin frumkvæði prófað gæði blekhylkja frá okkur. Hann sendi okkur tölvupóst í gær þar sem segir meðal annars: ,,…….Ég get glatt þig með því að prentarar sem voru látnir standa til prufu voru settir í gang og nákvæmlega engin vandamál”. Annar stóð í opinni stöðu þ.e. hausarnir voru ekki í parkstöðu eins og á að vera, og kveikt á prentaranum í þrjár vikur en ekki prentað, þetta venjulega stíflar hausinn en það var ekki vandamál hér með ykkar bleki. Hinn prentarinn fékk sömu stöðu en var slökkt á honum og hausar í parkstöðu, var eins og ljósið eina á fyrstu útprentun eftir að var kveikt. Þetta hef ég ekki fengið út úr öðrum blekhylkjum fram að þessu satt að segja. Hann hafði fyrr í vetur komið til okkar með tvær útprentanir af sömu ljósmyndinni. Báðar voru þær prentaðar á sama pappír úr sama prentara. Önnur myndin var prentuð með orginal blekhylki og hin með blekhylki frá okkur. Við höfum gert það að leik að spyrja viðskiptavini okkar hvor myndin sé fallegri og betur prentuð (án þess að upplýsa hvor er hvað). Oftar en ekki benda menn á myndina sem prentuð er með okkar blekhylkjum. Hann er ásamt æ fleiri ljósmyndurum orðinn fastakúnni hjá okkur.