Eftir að við fórum að bjóða upp á ódýrari blekhylki höfum við orðið vör við að menn hafi dregið fram prentara sem staðið hafa ónotaðir í nokkurn tíma. Í sumum þeirra tilfella hafa prentararnir ekki prentað eðlilega í upphafi. Ástæðan er oftast sú að prenthausarnir eru þornaðir upp. Til að leysa það mál er þarf að fara í hreinsunaraðgerðir og skal vísast í leiðbeiningar fyrir viðkomandi prentara (oft í „properties – head cleaning“).